Skólanámskráin byggir á aðalnámskrá grunnskóla og er nánari útfærsla skólans á
þeim markmiðum sem hún setur grunnskólum. Hún á að spegla skólastarfið í NÚ
eins og það er, sérkenni skólans og aðstæður. Námskráin er því eins og
skólastarfið í NÚ í sífelldri þróun og tekur í framtíðinni breytingum samkvæmt
því.
Almennan hluta námskrárinnar er að finna í tengli hér að ofan. Kennsluáætlanir
breytast frá ári til árs og innihalda upplýsingar um það námsefni sem notað er
hverju sinni, tímaáætlanir, verkefni og vægi mismunandi þátta námsgreinarinnar
í námsmati. Í námskrárhlutanum er svo að finna þau markmið og hæfniviðmið sem
við sækjumst eftir að ná í mismunandi greinum og árgöngum.
NÚ er skóli fyrir unglinga í 8.–10. bekk og þar er lögð áhersla á að nemendur
beri aukna ábyrgð á sínu námi. Stefna NÚ er að efla sjálfræði nemenda og
sjálfstæði í vinnubrögðum. Námsumhverfi nemenda er að stærstum hluta rafrænt.
Allir nemendur fá netfang hjá NÚ og aðgang að Google Classroom umhverfi.
Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám.
Við gerð námsáætlana er miðað við hæfniviðmið sem tilgreind eru í
Aðalnámskrá grunnskóla.
Námsáætlanir eru aðgengilegar á heimasíðu skólans og á Namfus.is. Í öllum
árgöngum unglingadeildar verður námsmati hagað samkvæmt matsviðmiðum
aðalnámskrárinnar og einkunnir gefnar í bókstöfum og/eða með umsögn.
NÚ starfar eftir lotukerfi þar sem unnið er með þrjú námsfög í þrjár vikur í
senn. Í lok hverrar lotu fá nemendur og foreldrar sent heim námsmat lotu ásamt
yfirliti yfir mætingu.
Nýyrðin í NÚ
- EinveraNemendur vinna einir með sjálfum sér.
- SamveraAllir nemendur eða stærri hópar taka á móti upplýsingum.
- HópveraNemendur starfa saman í hópastarfi.
- NÚveraAllir dagar í NÚ hefjast með NÚveru þar sem nemendur og starfsmenn horfa inn á við, læra öndun, fara yfir markmið og gildi og gera léttar og uppbyggjandi líkamsæfingar.
Félagslíf og framhaldsnám
Í NÚ er starfrækt nemendaráð sem skipuleggur félagslega viðburði ásamt
skólastjóra og öðrum starfsmönnum. NÚ hefur þá stefnu að taka þátt í öllum
félagslegum viðburðum og keppnum sem í boði eru hverju sinni. Allir nemendur
sem gefa kost á sér til starfa að félagsmálum fá tækifæri til þess.
Hefðbundnar uppákomur eru m.a. óvissuferð að hausti, vorferð, þorrablót,
spurningakeppni grunnskólanna, skólahreysti og árshátíðin.
Nemendur 10. bekkjar fá að kynnast þeim námsleiðum sem eru í boði eftir
grunnskólann. Framhaldsskólar halda kynningar og opin hús á vorönn.
Námsráðgjafi skólans sér um að upplýsa nemendur og foreldra um kynningar á
framhaldsnámi, tekur einstaklingsviðtöl við alla nemendur í 10. bekk og heldur
stutt námskeið í námstækni.